Dietmar Hamann, fyrrum leikmaður Liverpool, hefur gagnrýnt Neymar, stjörnu Paris Saint-Germain, fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar á sunnudaginn.
Neymar og hans menn í Paris Saint-Germain spila við Bayern Munchen í úrslitum og má búast við virkilega fjörugum leik.
Neymar er einn mikilvægasti ef ekki mikilvægasti leikmaður PSG en hann á það til að fara í taugarnar á fólki með leiktilþrifum á vellinum.
Hamann er á meðal þeirra sem Neymar á til að pirra en Bayern þarf að stöðva sóknarmanninn ef liðið ætlar að sigra deild þeirra bestu um helgina.
„Það sem mér líkar ekki við PSG eru leiktilþrif Neymar en Bayern getur lifað með því á miðsvæðinu," sagði Hamann.
„Þeir þurfa að koma í veg fyrir að Neymar komist í hættulegar stöður við vítateiginn. Þar er hann tæknilega framúrskarandi og getur sært þig."
„Bayern þarf að sýna Neymar það að þetta verði ekki auðvelt frá byrjun. Brassinn verður að sanna það að hann geti leitt lið að stærsta titlinum en ég er mjög efins."
Athugasemdir


