Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   fös 21. ágúst 2020 16:15
Magnús Már Einarsson
Ocampos gæti leyst Traore af hólmi hjá Wolves
Wolves hefur áhuga á að fá kantmanninn Lucas Ocampos í sínar raðir frá Sevilla.

Ocampos gæti komið til Wolves ef að kantmaðurinn fljóti Adama Traore verður seldur í sumar.

Ocampos skoraði sautján mörk með Sevilla á síðasta tímabili en hann skoraði meðal annars sigurmarkið gegn Wolves í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á dögunum.

Hinn 26 ára gamli Ocampos gæti kostað 40 milljónir punda en Sevilla sér hann sem kost ef Traore fer á háa upphæð í sumar.

Ocampos kom til Sevilla frá Mónakó í fyrra og var valinn bestu kaup tímabilsins á Spáni.
Athugasemdir
banner
banner
banner