Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
   fös 21. ágúst 2020 22:34
Sverrir Örn Einarsson
Ólafur Ingi: Gott að fá 90 mínútur
Ólafur Ingi Skúlason leikmaður Fylkis
Ólafur Ingi Skúlason leikmaður Fylkis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er frekar svekktur með úrslitin. Hefði viljað taka þrjú stig svona útfrá því hvernig leikurinn spilaðist. Mér fannst við betri aðilinn á löngum köflum. Byrjum mjög vel og komumst í nokkur góð færi en náum ekki að klára þau. Svo missum við leikinn aðeins úr höndunum og þeir taka yfir enda eru þeir bara með mjög gott lið. “Sagði Ólafur Ingi Skúlason leikmaður Fylkis um leikinn eftir 1-1 jafntefli Fylkis við Stjörnuna í Árbæ í kvöld.

Lestu um leikinn: Fylkir 1 -  1 Stjarnan

Fyrri leikur liðanna sem fram fór fyrr í sumar var eftirminnilegur fyrir margar sakir. Ragnar Bragi Sveinsson kinnbeinsbrotnaði og Ólafur Ingi fékk rautt spjald í leik sem Stjarnan vann með marki á lokaandartökum leiksins. Var sá leikur ofarlega í huga Fylkismanna í undirbúningi fyrir leik kvöldsins?

„Nei nei þetta er annar leikur og bara einn leikur í mótinu. Það er svo langt síðan. Við erum búnir að fara í hlé á milli og Covid og þetta er búið að vera stopp start hjá okkur. En við hugsum bara um einn leik í einu og okkur langaði bara að vinna Stjörnuna. Það hefur ekki gerst í háa herrans tíð svo við erum svekktir með það en tökum stigið.“

Ólafur Ingi var farinn að finna vel til þreytu undir lok leiks og þurfti meðal annars á aðhlynningu vegna krampa að halda. Var þetta farið að taka vel í í lokin?

„Já ég er búinn að eiga erfitt tímabil. Búinn að vera mikið meiddur og búinn að vera með aftan í lærinu frá því í byrjun tímabils og er bara að komast af stað en það tekur bara smá tíma. Gott að fá 90 mínútur og klára en maður er svo sem ekkert að yngjast .“

Sagði Ólafur Ingi en viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner