Aftur ríkir mikil óvissa um leik KÍ í Klaksvík gegn Slovan Bratislava frá Slóvakíu í forkeppni Meistaradeildarinnar. Ótrúleg atburðarás hefur átt sér stað í kringum leikinn en hann átti upphaflega að vera fyrr í vikunni.
Við komuna til Færeyja fór leikmannahópur Bratislava og fylgdarlið í skimun. Kórónaveiran greindist í sjúkraþjálfara liðsins og í kjölfarið þurfti allur hópurinn að fara í sóttkví.
UEFA leyfði félaginu að senda varalið til Færeyja til að taka þátt í leiknum og lenti sá hópur í gær. Leikurinn á að fara fram í dag en nú greina færeyskir fjölmiðlar að einn leikmaður varaliðsins hafi greinst með veiruna.
Slóvakarnir efast víst um skimanirnar hjá gestgjöfum sínum og fór umræddur leikmaður í aðra skimun í morgun og er beðið eftir niðurstöðu.

Aðalliðshópurinn braut reglur um sóttkví
Aðalliðshópur Slovan Bratislava er í sóttkví í Færeyjum og yfirvöld í Færeyjum segja að liðið þurfi að lúta sömu reglum og aðrir. Liðið þurfi því að vera alls fjórtán daga í sóttkví áður en það getur losnað. Slovan Bratislava hefur reynt að fá liðið laust úr sóttkví til þess að það geti haldið aftur heim til Slóvakíu.
Þá varð það stórt fréttamál í Færeyjum þegar einhverjir leikmenn sem áttu að vera í sóttkví sáust á vappi um Þórshöfn og gerðust sekir um brot á reglum um sóttkví.
Athugasemdir