Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   fös 21. ágúst 2020 16:54
Victor Pálsson
Oxlade-Chamberlain ekki með Liverpool á undirbúningstímabilinu
Alex Oxlade-Chamberlain, leikmaður Liverpool, mun ekki spila með liðinu á undirbúningstímabilinu vegna hnémeiðsla.

Þetta staðfesti Jurgen Klopp, stjóri liðsins, en leikmaðurinn meiddist á æfingu í Austurríki þar sem Liverpool æfir þessa dagana.

Liverpool mun spila æfingaleiki við Salzburg og Stuttgart fyrir leik gegn Arsenal í Samfélagsskildinum þann 29. ágúst.

„Þetta lítur út fyrir að vera svipað og með Jordan Henderson sem heldur honum frá í óvitaðan tíma," sagði Klopp í dag.

„Hann mun klárlega ekki spila leik á undirbúningstímabilinu. Hann missir pottþétt af leiknum við Arsenal og svo sjáum við til. Næsti leikur er örugglega tveimur vikum seinna en ég veit ekki meira."

Miðjumaðurinn hélst nokkuð heill á síðustu leiktíð og missti aðeins af fimm leikjum.

Athugasemdir
banner