Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fös 21. ágúst 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Rangers hafnar tilboði frá Leeds í Kent
Skoska félagið Rangers hefur hafnað tilboði frá Leeds í kantmanninn Ryan Kent.

Steven Gerrard, stjóri Rangers, staðfesti þetta í dag.

Gerrard segir að Kent sé ekki til sölu og að tilboð Leeds hafi verið óraunhæft.

Talið er að tilboðið hafi hljóðað upp á tíu milljónir punda.

Kent er 23 ára gamall en hann ólst upp hjá Liverpool. Hann hefur leikið undanfarin tvö tímabil með Rangers.
Slapp
banner
banner