Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
   fös 21. ágúst 2020 22:19
Sverrir Örn Einarsson
Rúnar: Bestir í því að vera leiðinlegastir
Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Stjörnunar
Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Stjörnunar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var baráttuleikur. Mikil stöðubarátta og ekki mikið um færi. Við sköpuðum svo sem ekki mikið en vorum klaufar við að halda bolta og spila á milli okkar. Misstum boltann alltaf strax um leið og við unnum hann og vorum ekki líkir okkur sjálfum í þessum leik.en komumst yfir og skorum fallegt mark. Síðan eigum við ekkert að fá á okkur mark úr horni. Við erum búnir að verjast því vel í sumar og klaufaskapur í okkur að klára það ekki almennilega.
Sagði Rúnar Páll Sigmundsson um leikinn þegar Stjarnan gerði jafntefli við Fylki í Árbænum fyrr í kvöld.

Lestu um leikinn: Fylkir 1 -  1 Stjarnan

Leikurinn hófst af krafti og voru liðin búin að næla sér í þrjú gul spjöld eftir aðeins 13 mínútna leik. Menn hafa greinilega verið vel gíraðir fyrir leik.

„Já í flestu á milli þessara liða er bölvaður fætingur og það var það í dag. Menn voru svolítið lemstraðir eftir þetta.“

Fréttaritari las greiningu frá Wyscout í grein á vísi þar sem fram kom að Stjarnan hefði fengið 6.4 stigum meira á leiktíðinni en frammistaða liðsins á vellinum gæfi tilefni til. Um þetta sagði Rúnar.

„Bara frábær tölfræði. Að við séum bestir í því að vera leiðinlegastir eða? Við förum í hvern leik til að vinna hann og sækja sem flest stig. Fengum 1 stig hér í dag og það var ekki nógu gott en við mættum bara öflugum Fylkismönnum í dag og það er bara svoleiðis.“

Viðtalið við Rúnar má sjá hér að ofan
Slapp
banner
banner