Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   fös 21. ágúst 2020 23:06
Victor Pálsson
Sjáðu sjálfsmark Lukaku sem tryggði Sevilla titilinn
Romelu Lukaku komst tvisvar á blað í kvöld er Inter Milan og Sevilla áttust við í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Köln.

Lukaku er á mála hjá Inter en hann skoraði fyrsta mark leiksins úr vítaspyrnu þegar aðeins fimm mínútur voru liðnar.

Þegar 73 mínútur voru komnar á klukkuna þá skoraði Lukaku annað mark en að þessu sinni setti hann boltann í vitlaust net.

Lukaku potaði í boltann eftir bakfallspyrnu Diego Carlos en knötturinn var á leið framhjá og því um sjálfsmark að ræða.

Lukaku átti annars frábært tímabil fyrir Inter en hann skoraði 34 mörk í öllum keppnum fyrir félagið.

Seinna mark hans í kvöld reyndist þó sigurmarkið og fagnaði Sevilla sigri í Evrópudeildinni í sjötta sinn með 3-2 sigri.

Hér má sjá sjálfsmarkið umtalaða.



Athugasemdir
banner
banner
banner