Klukkan 16:00 að íslenskum tíma átti að flauta til leiks í leik KÍ Klaksvík og Slovan Bratislava í forkeppni Meistaradeildarinnar. Það var hins vegar ekki gert.
Ótrúleg atburðarrás hefur átt sér stað í kringum leikinn, sem átti upphaflega að fara fram á miðvikudag. Honum var frestað eftir að sjúkraþjálfari Slovan Bratislava greindist með veiruna við komuna til Færeyja fyrr í vikunni. Í kjölfarið þurfti hópur liðsins að fara í sóttkví.
UEFA leyfði félaginu að senda varalið til Færeyja til að taka þátt í leiknum og lenti sá hópur í gær. Svo vildi til að leikmaður varaliðsins greindist með veiruna við komuna til Færeyja.
Það var mikil óvissa í kringum leikinn í dag og fóru leikmenn Færeyjarmeistara KÍ út á völl að hita upp. Leikmenn Slovan Bratislava mættu aftur á móti ekki þar sem UEFA tók að lokum ákvörðun um að aflýsa leiknum.
Í yfirlýsingu frá slóvakíska félaginu, sem send var út fyrr í kvöld, segir að Slovan Bratislava hafi gert allt sem í sínu valdi stóð til að hægt væri að spila leikinn, en það hafi ekki gengið upp að mati UEFA. Liðunum sem flogið hafi verið flogið til Færeyja yrði flogið til baka til Slóvakíu í dag. Leyfi fékkst fyrir því.
Enn fremur segir í yfirlýsingu Slovan Bratislava að UEFA hafi ekki enn tekið ákvörðun um framhaldið, hvort að KÍ verði veittur sigur eða hvað.
Players from KÍ Klaksvík are now warming up on the pitch but there is no sign of anybody from Slovan Bratislava. The game is not officially canceled and the game will start and then be forfeited @ChampionsLeague #UefaChampionsLeague #COVID19 pic.twitter.com/5ufAKfHhYI
— Tróndur Arge (@ArgeTrondur) August 21, 2020
At 16.55 the stadium speaker announced that the game between KÍ Klaksvík and Slovan Bratislava is officially cancelled. KÍ players never entered the pitch after the warmup. Now all eyes are on @UEFA to see what happens next. Is KÍ the winner and will they get the prize money?
— Tróndur Arge (@ArgeTrondur) August 21, 2020
Athugasemdir



