Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   fös 21. ágúst 2020 12:30
Magnús Már Einarsson
Þriðja tilboði Leeds í White hafnað
Brighton hefur hafnað þriðja tilboðinu frá Leeds í varnarmanninn Ben White.

White var á láni hjá Leeds á síðasta tímabili og vakti athygli fyrir góða frammistöðu.

Leeds hefur boðið 18,5 milljónir punda og 22 milljónir punda í White en Brighton hafnaði þeim tilboðum.

Nýjasta tilboð Leeds hljóðaði upp á 25 milljónir punda en því var líka hafnað.

White á tvö ár eftir af samningi sínum við Brighton og Graham Potter, stjóri liðsins, vill láta hann spila á komandi tímabili.
Athugasemdir
banner
banner