Í kvöld fór fram leikur Glasgow City og Wolfsburg í Meistaradeild kvenna en um var að ræða viðureign í 8-liða úrslitum keppninnar.
Wolfsburg er með mun sterkara lið en Glasgow og fór örugglega áfram í undanúrslit með sannfærandi 9-1 sigri á þeim skosku.
Pernille Harder var allt í öllu hjá Wolfsburg í kvöld en hún skoraði fernu í sigri þýska stórliðsins.
Úrslit kvöldsins:
Meistaradeild kvenna: Wolfsburg og Barcelona í undanúrslit
Leikmaður að nafni Lauren Wade spilaði með liði Glasgow í kvöld en það er stelpa sem íslenskir knattspyrnuaðdáendur gætu kannast við.
Wade skoraði 20 mörk í 18 leikjum fyrir Þrótt Reykjavík í 1. deild kvenna árið 2019 áður en hún hélt til Skotlands fyrr á þessu ári. Hún hjálpaði Þrótti að komast upp.
Hún byrjaði leikinn í kvöld í fremstu víglínu Glasgow og skoraði eina mark liðsins í tapinu stóra.
Wade er einnig landsliðskona fyrir Norður-Írland og hefur spilað 14 leiki fyrir þjóð sína. Hún er fædd árið 1993 og er 26 ára gömul.
Lauren Wade fór bara úr Inkasso í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar 😅 https://t.co/83uUkEHIt5
— Runólfur Trausti Þórhallsson (@Runolfur21) August 21, 2020
⚽ @GlasgowCityFC bowed out of the #UWCL- but @LaurenW17 left a calling card⚡⚡⚡ pic.twitter.com/1oC70ToocG
— #UWCL (@UWCL) August 23, 2020
Athugasemdir


