Jóhannes Kristinn Bjarnason, leikmaður KR, þurfti ekki að fara í sóttkví eins og aðrir leikmenn liðsins við komuna til Íslands eftir Evrópuleikinn við Celtic.
Jóhannes er 15 ára gamall og því er hann nægilega ungur til að falla ekki undir lög um sóttkví við heimkomu.
Jóhannes er 15 ára gamall og því er hann nægilega ungur til að falla ekki undir lög um sóttkví við heimkomu.
KR kom heim aðfaranótt miðvikudags og allir leikmenn og starfsmenn liðsins eru nú í sóttkví nema Jóhannes.
Jóhannes, sem er sonur Bjarna Guðjónssonar aðstoðarþjálfara KR, spilaði með 2. flokki í 3-2 tapi gegn Selfossi í gær og skoraði annað mark Vesturbæinga.
Jóhannes var á bekknum gegn Celtic en fyrr í sumar skoraði hann sitt fyrsta mark í mótsleik í meistaraflokki gegn Vængjum Júpíters í Mjólkurbikarnum.
Sjá einnig:
KR bíður svara - Vilja vinnusóttkví eða seinni skimun strax
Athugasemdir




