Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   fös 22. maí 2026 11:09
Elvar Geir Magnússon
Tuchel um óvænta valið á Toney: Tikkar í mörg box
Ivan Toney.
Ivan Toney.
Mynd: EPA
Hinn þrítugi sóknarmaður Ivan Toney er eitt óvæntasta nafnið í enska landsliðshópnum sem fer á HM. Hann kom með beinum hætti að 53 mörkum í 49 leikjum í öllum keppnum með sádi-arabíska stórveldinu Al-Ahli á tímabilinu.

Toney er vanur því að spila í miklum hita og er einnig afbragðs vítaskytta er talið að það hafi hjálpað honum að landa miða í flugvélina á HM.

„Þegar við fórum að skoða hina ýmsu þætti þá kom okkur líka á óvart að hann væri í myndinni! Ég fékk frábæra umsögn frá þjálfaranum hans (Matthias Jaissle) sem ég er í góðu sambandi við," segir Tuchel.

„Hann er að skila frá sér frábærum tölum og er með hæfileika sem geta hjálpað okkur mikið í ákveðnum aðstæðum, þegar við erum að eltast við að ná úrslitum. Hann getur vegið vel upp með Harry Kane."

„Hann er áberandi í teignum og gæti tekið athyglina af öðrum sóknarmönnum okkar, hann er náttúrulega góður í að klára færi, getur hjálpað í föstum leikatriðum, er góður í að nota líkamann sinn og svo má ekki gleyma að hann er vítaskytta á heimsmælikvarða. Hann tikkar í mörg box."



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner