Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
   lau 22. júní 2019 19:12
Ester Ósk Árnadóttir
Gregg: Fannst þeir ekki ógna í 90 mínútur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég vill ekki vera neikvæður. Við spiluðum við gott lið í dag en mér líður samt eins og við hefðum átt að vinna. Tilfinningin er eftir því," sagði Gregg þjálfari Þór eftir markalaust jafntefli gegn Keflavík á Þórsvellinum í dag.

Lestu um leikinn: Þór 0 -  0 Keflavík

Þór er á toppi deildarinnar með 16 stig eins og Fjölnir en með betri markatölu.

„Það skiptir engu máli hvar maður er í deildinni akkúrat núna. Mikilvægast er að ná í öll þau stig sem maður getur, þannig það eru vonbrigði að ná ekki í þrjú stig í dag."

Jafnræði var með liðunum en Þór hélt betur í boltann og átti nokkur góð færi.

„Við vorum meira með boltann, hann fór tvisvar í stöngina og við komum okkur nokkrum sinnum í góðar stöður. Það er ekki spurning að strákarnir spiluðu vel í dag, unnu vel og við vorum mjög góðir varnarlega en þetta fór ekki alveg eins og við vildum. Við tókum sénsa á réttum tíma fannst mér. Ég held að Keflavík hafi komið hingað til að ná í stigið og það er allt í lagi. Þeir fengu stigið en mér fannst þeir ekkert ógna í þessar 90 mínútur."

Alvaro Montejo og Sveinn Elías fóru báðir meiddir af velli í dag.

„Það eru margir leikmenn meiddir en við erum með mjög góðan hóp af leikmönnum. Við þurfum bara að takast á við það og halda áfram. Alvaro er frá í 2-3 vikur og Sveinn Elías vonandi eitthvað aðeins styttra."

Þór á Fjölnir í næsta leik en bæði lið eru með 16 stig í fyrsta og öðru sætinu.

„Þetta eru allt stórir leikir. Við munum nálgast þann leik á nákvæmlega sama hátt og við nálgumst aðra leiki. Það sem skiptir máli í deildinni núna er stöðugleiki og það er eitthvað sem við höfum haft í síðustu leikjum og það er það sem kemur manni upp um deild. Við erum svekktir núna en verðum að horfa á það jákvæða."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner