Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 16:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild kvenna: HK svaraði tapinu óvænta mjög vel
Kvenaboltinn
María Lena hefur farið á kostum í sumar.
María Lena hefur farið á kostum í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK tapaði gríðarlega óvænt gegn Hamri frá Hveragerði fyrr í vikunni í 2. deild kvenna. Þeim tókst að svara þeim vonbrigðum býsna vel þegar þær fóru á Akureyri og mættu Hömrunum í dag.

María Lena Ásgeirsdóttir skoraði bæði mörk HK í 2-0 sigri. Hún er búin að skora 13 mörk í níu deildarleikjum í sumar.

HK er á toppi deildarinnar með sjö stiga forskot á Hamrana sem eru í öðru sæti. HK hefur unnið alla sína leiki fyrir utan leikinn gegn Hamri, sem er í sjöunda sæti með sjö stig.

Álftanes vann Sindra 2-1 á heimavelli í hinum leik dagsins í 2. deild kvenna. Álftanes kom til baka eftir að hafa lent 1-0 undir. Álftanes er í sjötta sæti með níu stig eftir fimm leiki spilaða, og er Sindri með sex stig eftir átta leiki spilaða í áttunda sæti.

Hamrarnir 0 - 2 HK
0-1 María Lena Ásgeirsdóttir ('18)
0-2 María Lena Ásgeirsdóttir ('37)

Álftanes 2 - 1 Sindri
0-1 Samira Suleman ('15)
1-1 Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir ('22)
2-1 Edda Mjöll Karlsdóttir ('50)
Athugasemdir
banner
banner
banner