Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 20:06
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Tindastóll steinlá á heimavelli - Jafnt á Höfn
Mynd: Vængir Júpiters - Twitter
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Tindastóll steinlá gegn Vængjum Júpíters er liðin mættust í 3. deildinni fyrr í dag.

Stólarnir eru í þriðja sæti ásamt Augnablik og gátu minnkað bilið milli sín og toppliðanna með sigri á meðan Vængirnir þurftu sigur til að fjarlægjast fallsvæðið.

Vængir Júpíters tóku forystuna á sextándu mínútu og leiddu 0-2 í leikhlé eftir mark frá Kristjáni Svani Eymundssyni.

Vængirnir voru komnir í fjögurra marka forystu áður en heimamenn á Sauðárkróki náðu að minnka muninn. Lokatölur urðu 1-5 og eru Vængir Júpíters með 12 stig eftir 10 umferðir. Tindastóll er með 16 stig.

Tindastóll 1 - 5 Vængir Júpíters
0-1 Ólafur Sveinmar Guðmundsson ('16)
0-2 Kristján Svanur Eymundsson ('45)
0-3 Ervist Pali ('51)
0-4 Gunnar Darri Bergvinsson ('60)
1-4 Luke Morgan Conrad Rae ('62)
1-5 Gunnar Jökull Johns ('77)

Þá gerðu Sindri og Álftanes 2-2 jafntefli á Höfn í Hornafirði.

Gestirnir af Álftanesi komust yfir snemma leiks en Sindri sneri stöðunni við og leiddi 2-1 þar til Kristján Lýðsson bjargaði stigi fyrir Álftnesinga með marki undir lokin.

Álftanes kom sér af fallsvæðinu með stiginu á meðan Sindri er í fimmta sæti.

Sindri 2 - 2 Álftanes
0-1 Magnús Andri Ólafsson ('22)
1-1 Kristinn Justiniano Snjólfsson ('43, víti)
2-1 Luis Miguel Almeida De Freitas ('72)
2-2 Kristján Lýðsson ('90)
Rautt spjald: sverrir Bartolozzi, Sindri ('90)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner