KFS og Ýmir gerðu jafntefli í stórskemmtilegum leik í toppbaráttu A-riðils 4. deildar.
Ýmir komst tvisvar sinnum yfir í fyrri hálfleik en staðan var 2-2 í leikhlé. KFS komst svo yfir í upphafi síðari hálfleiks en Ýmir sneri stöðunni við og tók forystuna á 72. mínútu, staðan orðin 3-4.
Sigur hefði verið frábær fyrir Ými en það var enginn annar en Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem jafnaði fyrir KFS með marki úr vítaspyrnu á 90. mínútu.
KFS er með fjögurra stiga forystu á toppi riðilsins en Ýmir á leik til góða. Toppbaráttan verður því gríðarlega spennandi í haust, en ÍH, Léttir og GG eru skammt fyrir aftan.
A-riðill:
KFS 4 - 4 Ýmir
0-1 Birgir Magnússon ('33)
1-1 Guðlaugur Gísli Guðmundsson ('35, víti)
1-2 Davíð Birkir Sigurjónsson ('39)
2-2 Erik Ragnar Gíslason ('44)
3-2 Borgþór Eydal Arnsteinsson ('49)
3-3 Arian Ari Morina ('51)
3-4 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('72)
4-4 Gunnar Heiðar Þorvaldsson ('90, víti)
Í D-riðli heldur Smári áfram að gera góða hluti eftir erfiða fæðingu. Kópavogsstrákarnir unnu sinn þriðja leik í röð og eru búnir að jafna Hvíta riddarann í þriðja sæti.
Smári lagði Hörð Ísafirði að velli eftir að hafa komist þremur mörkum yfir á fyrstu 46 mínútum leiksins.
Heimamenn í Herði minnkuðu muninn niður í eitt mark undir lokin en það dugði ekki til.
Smári er þó líklega ekki á leið upp um deild þar sem KH er í öðru sæti, níu stigum fyrir ofan og með leik til góða.
D-riðill:
Hörður Í. 2 - 3 Smári
0-1 Alexander Fannberg Gunnarsson ('3)
0-2 Sæþór Atli Harðarson ('43)
0-3 Guðmundur Andri Ólason ('46)
1-3 Sigurður Arnar Hannesson ('85)
2-3 Guðmundur Arnar Svavarsson ('89)
Það tekur tíma fyrir stöðutöflurnar að uppfærast.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Athugasemdir



