Liverpool og Tottenham unnu æfingaleiki sína í dag með þremur mörkum gegn engu en enska undirbúningstímabilið er á fullri ferð.
Roberto Firmino, Naby Keita og Rhian Brewster gerðu mörk Liverpool í sigri gegn Stuttgart. Sadio Mane og Mohamed Salah spiluðu fyrri hálfleikinn.
Ryan Sessegnon og Son Heung-min gerðu þá mörk Tottenham í sigri gegn Ipswich. Mörkin þrjú komu á fyrsta hálftíma leiksins og verður áhugavert að sjá hvort Sessegnon fái aukin tækifæri með aðalliðinu á næstu leiktíð.
Sessegnon þykir öflugur leikmaður og spilaði hann allan leikinn gegn Ipswich í dag. Sessegnon er tvítugur og kom aðeins við sögu í sex úrvalsdeildarleikjum á síðustu leiktíð.
Liverpool 3 - 0 Stuttgart
1-0 Roberto Firmino ('15)
2-0 Naby Keita ('40)
3-0 Rhian Brewster ('68)
Tottenham 3 - 0 Ipswich
1-0 Ryan Sessegnon ('6)
2-0 Son Heung-min ('10)
3-0 Son Heung-min ('29)
Ef litið er á æfingaleiki í Evrópu þá vann Ajax sannfærandi sigur á RB Salzburg á meðan Eintracht Frankfurt hafði betur gegn PSV Eindhoven.
Salzburg 1 - 4 Ajax
0-1 R. Gravenberch ('2)
1-1 S. Koita ('9)
1-2 Antony ('16)
1-3 Donny van de Beek ('67)
1-4 D. Rensch ('82)
PSV 1 - 2 Frankfurt
0-1 D. Kamada ('56)
1-1 C. Gakpo ('63)
1-2 M. Hinteregger ('68)
Athugasemdir


