Það voru nokkrir Íslendingar sem komu við sögu í æfingaleikjum í dag og í gær. Samúel Kári Friðjónsson kom inn í seinni hálfleik er Paderborn tapaði fyrir Borussia Mönchengladbach í æfingaleik í dag.
Samúel Kári kom við sögu í fimm leikjum á þýska deildartímabilinu eftir að hafa gengið í raðir Paderborn í janúar.
Jón Dagur Þorsteinsson var þá í byrjunarliði Árósa í markalausu jafntefli gegn St. Pauli á meðan Kjartan Henry Finnbogason byrjaði í fjörugum tapleik Vejle gegn Viborg.
Paderborn 0 - 2 B. Mönchengladbach
0-1 Hannes Wolf ('50)
0-2 Stefan Lainer ('68)
St. Pauli 0 - 0 Århus
Vejle 3 - 4 Viborg
Athugasemdir


