Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
   lau 22. ágúst 2020 17:20
Ester Ósk Árnadóttir
Arnar um bekkjarsetu Hallgríms: Töldum þetta besta byrjunarliðið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er fyrst og fremst svekktur með að hafa misst þetta niður í jafntefli en að því sögðu fannst mér við ekki spila frábæran leik í dag," sagði Arnar Grétarsson eftir 2-2 jafntefli við ÍA á Greifavellinum í dag þar sem KA komst 2-0 yfir.

Lestu um leikinn: KA 2 -  2 ÍA

KA komst í lykilstöðu á 47 mínútu þegar Guðmundur kom KA í 2-0 en ÍA kom til baka og jafnaði leikinn.

„Við gerðum nóg til að fara með þrjú stig vegna þess að ÍA var nánast ekkert að opna okkur. Ég er svekktari fyrir vikið að komast í 2-0 og fá dauðafæri til að komast í 3-0. Það var svolítill uppgjöf hjá ÍA á ákveðnum tíma en svo kveikir í þeim þetta fyrra mark. Við hefðum átt að sigla því heim þegar við vorum í 2-1 stöðunni en fáum sjálfsmark á okkur úr föstu leikatriði sem við eigum að vera mjög sterkir í. Svo fáum við aftur dauðafæri til að koma okkur í 3-2. Þetta er svona saga hjá liði sem er að ströggla að þá vantar svolítið sjálfstraust í mannskapinn og að menn séu rólegri á boltanum. Við komumst í 2-0 og við eðlilegar aðstæður hefðum við átt að sigla því heim en það var ekki raunin."

Guðmundur skorar fyrir KA á 26 mínútu en markið var dæmt af vegna sóknarbrots.

„Það hefur verið nánast sagan í gegnum alla leikina okkar að það er tekið af okkur mark. Ég veit ekki hvernig þetta var en við erum að skora mörk. Skorum á móti KR og FH sem eru dæmd af og í dag erum við að skapa okkur 3-4 mjög góð færi sem er mjög jákvætt en þeim um meira svekkjandi hvernig við létum leikinn frá okkur. Það þarf oft bara einn sigur til að koma sér af stað og það er það sem okkur vantar."

Hallgrímur Mar sem hefur verið í lykilhlutverki hjá KA byrjaði á bekknum í dag.

„Það var enginn sérstök ástæða. Þjálfararnir reyna að velja sitt besta lið hverju sinni og í dag var þetta byrjunarliðið sem við töldum vera það besta í dag og það verður bara að koma í ljós hvað verður á miðvikudaginn."

KA mætir nú Stjörnunni tvisvar á skömmum tíma. Fyrst á útivelli og síðan fjórum dögum síðar á heimavelli.

„Þetta er Covid dæmið. Það breytir í raun ekki hvaða liði þú spilar á móti í þessari deild og við höfum séð það í deildinni að það eru allir að taka stig af öllum. Þetta eru allt erfiðir leikir og við þurfum fyrst og fremst að hugsa um að við séum í standi og við séum að gera okkar. Þá ekki gefa svona mörk eins og við gáfum í dag."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan þar sem Arnar meðal annars ræðir standið á Hauk Heiðar sem var á bekknum í dag en hann hefur verið að glíma við erfið meiðsli.
Slapp
banner
banner
banner