Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arsenal býður Salah velkominn
Arsenal hefur samið við hinn 17 ára gamla Salah-Eddine á frjálsri sölu frá Feyenoord í Hollandi.

Hann er hollenskur miðjumaður sem mun fara í unglingalið Arsenal.

Arsenal segir að leikmaðurinn sé einfaldlega þekktur sem 'Salah' og ákvað félagið að stríða stuðningsmönnum sínum og öðrum fótboltaáhugamönnum á Twitter með því að bjóða 'Salah' velkominn.

„Velkominn til Arsenal, Salah," var skrifað á Twitter-reikning Lundúnafélagsins.

Það héldu eflaust einhverjir að þarna væri um að ræða Mohamed Salah, leikmann Liverpool, en svo er auðvitað ekki.


Athugasemdir
banner