Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
   lau 22. ágúst 2020 16:48
Anton Freyr Jónsson
Grindavíkurvöllur
Bjössi Hreiðars: Liðið er í frábæru standi
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Grindavík og Þór mættust á Grindavíkurvelli í dag í ótrúlegum fótboltaleik. Alexander Veigar Þórarinsson skoraði eina mark leiksins en það kom á 31.mínútu.

Grindavík misstu tvo menn af velli í leiknum. Gunnar Þorsteinsson fékk að líta beint rautt í byrjun leiks og síðan var Oddur Ingi Bjarnason rekinn útaf í byrjun síðari hálfleiks með sitt annað gula.

Sigurbjörn Hreiðarsson þjálfari Grindavíkur var ánægður að leikslokum.

Lestu um leikinn: Grindavík 1 -  0 Þór

„Mín fyrstu viðbrögð eru þau að leikmenn voru geggjaðir fannst mér í þeirri vinnu. Við erum nátturulega níu. Frá 10. mínútu missum við mann útaf og svo aftur í upphafi seinni hálfleik, þannig við þurftum að múra fyrir og gerðum það frábærlega. Menn unnu vinnuna fáránlega vel og ég er hrikalega ánægður með liðið enda er liðið í frábæru standi og við sýndum það hér í dag níu inn á vellinum þannig það er gaman að geta sýnt það."

Grindvíkingar missa Gunnar Þorsteinsson útaf með beint rautt eftir tíu mínútna leik og síðan í byrjun siðari hálfleiks er Oddur Ingi Bjarnason rekinn útaf með sitt annað gula. Hvernig horfðu spjöldin við Sigurbirni?

„Seinna er annað gula. Oddur var kominn með gult og það var annað gula, það var alveg klárt mál og ekkert við því að segja. Oddur var ákafur, hann sá að markmaðurinn missti boltann og keyrði í hann og náttúrulega með gult og það var ekkert sérstaklega skynsamlegt en maður vill að leikmenn séu gráðugir í boltann. Ég hefði orðið brjálaður ef við hefðum ekki unnið þennan leik eða fengið neitt úr honum."

„Mér fannst maður vera kominn fyrir aftan Gunna en þetta metur Elli svona, það er bara eins og það er. Mér fannst halla á okkur í þessum leik. En ég tek ekkert af Ella að hann er geggjaður dómari og hefur alltaf verið og er einn af mínum uppáhalds og ég er ótrúlega ánægður með hann sé í deildinni en mér fannst hann ekki ná sér á strik í dag en það breytir ekki neinu við unnum leikinn í dag,"

Grindvíkingar eru núna komnir með tvo sigurleiki í röð og það hlýtur að gefa þeim byr undir báða vængi fyrir seinni umferðina.

„Já klárt, það er bara þannig. Við þurftum að vinna þennan leik og gerðum það. Þetta er bara einn leikur og við hugsum bara um einn leik."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner