Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 13:09
Ester Ósk Árnadóttir
Byrjunarlið KA og ÍA: Hallgrímur Mar settur á bekkinn
Hallgrímur Mar Steingrímsson er ekki að eiga sitt besta tímabil.
Hallgrímur Mar Steingrímsson er ekki að eiga sitt besta tímabil.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA og ÍA mætast í 13. umferð Pepsi Max deildar-karla á Greifavellinum í dag. Leikurinn fer fram kl. 14:00.

KA tapaði fyrir Val á Origo vellinum í síðustu umferð 1-0 en ÍA vann flottan sigur á Fylkir 3-2 í skemmtilegum leik.

Bæði lið þurfa á sigrinum að halda í dag. KA er í tíunda sæti, tveimur stigum frá fallsæti. ÍA er tveimur sætum ofar með 13 stig og getur rifið sig frá fallbaráttunni með sigri.

KA gerir tvær breytingar frá síðasta leik. Hallgrímur Mar Steingrímsson og Andri Fannar Stefánsson fá sér sæti á bekknum. Inn í þeirra stað koma Hrannar Björn Steingrímsson og Bjarni Aðalsteinsson. Það eru sömuleiðis tvær breytingar á liði ÍA en inn koma þeir Jón Gísli Eyland Gíslason og Marteinn Theodórsson í stað Ólafs Vals Valdimarssonar sem er ekki í hóp og Hall Flosasonar sem fær sér sæti á bekknum.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Byrjunarlið KA
12. Kristian Jajalo
7. Almarr Ormarsson (f)
3. Mikkle Qvist
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Ívar Örn Árnason
11. Ásgeir Sigurgeirsson
16. Brynjar Ingi Bjarnason
22. Hrannar Björn Steingrímsson
30. Sveinn Margeir Hauksson
33. Guðmundur Steinn Hafsteinsson
77. Bjarni Aðalsteinsson

Byrjunarlið ÍA
12. Árni Snær Ólafsson
3. Óttar Bjarni Guðmundsson
5. Benjamín Mehic
6. Jón Gísli Eyland Gíslason
7. Sindri Snær Magnússon
10. Tryggvi Hrafn Haraldsson
16. Brynjar Snær Pálsson
18. Stefán Teitur Þórðarsson
21. Marteinn Theodórsson
22. Steinar Þorsteinsson
24. Hlynur Sævar Jónsson

Leikir dagsins:
14:00 KA - ÍA (Greifavöllurinn)
14:00 FH - HK (Kaplakriki)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner