Úrúgvæski sóknarmaðurinn Edinson Cavani er án félags eftir sjö ár og 200 mörk með Paris Saint-Germain.
Cavani er 33 ára gamall og eftirsóttur af félögum á borð við Benfica og Atletico Madrid, sem hafa bæði ákveðið að hætta samningsviðræðum við Cavani vegna fáránlegra launakrafna.
„Ég vil ekki benda á neinn en það er fáránlegt hvernig sumir leikmenn og umboðsmenn eða ættingjar þeirra haga sér. Það er ótrúlegt. Við erum ekki hérna til að láta ræna okkur eða gera eitthvað skrýtið," sagði Enrique Cerezo, forseti Atletico.
Portúgalskir fjölmiðlar halda því fram að teymi Cavani vilji fá hluta af greiðslum til sín svart til að borga ekki skatta.
Cavani er sagður heimta 10 milljónir evra í árslaun eftir skatt, sem myndi þýða 20 milljónir evra á ári í launakostnað fyrir Benfica. Þegar félagið vildi ekki samþykkja þetta á fulltrúi Cavani að hafa stungið uppá því að launin yrðu greidd með 'öðrum leiðum'.
Athugasemdir

