Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dómararnir komu úr ýmsum áttum fyrir leikinn á Grenivík
Lengjudeildin
Kristinn Friðrik Hrafnsson.
Kristinn Friðrik Hrafnsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna er í gangi leikur Magna og ÍBV í Lengjudeildinni. Leikið er á Grenivíkurvelli fyrir norðan.

Staðan er enn 0-0 en hægt er að nálgast textalýsinguna með því að smella hérna.

Baldvin Már Borgarsson er á vellinum og hann vakti athygli á því í textalýsingu sinni að dómaratríóið hafi komið úr öllum áttum til að dæma þennan leik.

„Eyjamenn eru að labba til leiks en þeir koma yfir götuna frá skólanum. Magnamenn birtast svo hér aðeins seinna en þeir labba beint inn á völl frá splunkunýju vallarhúsi."

„Dómarar í dag koma einnig úr ýmsum áttum en Kristinn Friðrik (Hrafnsson) flaug með mér fyrstu vél í morgun frá Reykjavík til Akureyrar, Breki Sigurðsson AD1 missti af fluginu og flaug með næstu vél til Egilsstaða og keyrði þaðan, en Villi Svavars AD2 er búsettur á Akureyri svo hann þurfti ekki að ferðast langt."
Athugasemdir
banner