Jonathan Fadugba, þáttarstjórnandi, Nordic Football hlaðvarpsins fer mjög fögrum orðum um Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmann Norrköping í Svíþjóð.
Rætt var um Ísak í hlaðvarpinu í vikunni. „Hann er með hrikalega góðan vinstri fót. Þegar hann spilar á miðsvæðinu, þá minnir hann mig á Frank Lampard, það hvernig hann kemur seint inn í teiginn. Hann er með mjög góðar tímasetningar á hlaupunum sínum," var meðal annars sagt um hann.
Ísak, sem er aðeins 17 ára gamall, er að eiga frábært tímabil með Norrköping en hann hefur fest sig í sessi í byrjunarliði liðsins. Hann getur spilað á miðjunni, sem bakvörður og kantmaður. Hann hefur verið sérstaklega iðinn við að leggja upp mörk.
Þessum efnilega Skagamanni hefur verið sérstaklega hrósað fyrir frábært hugarfar.
Fadugba, sem lýsir sjálfum sér sem fótboltaráðgjafa, rithöfundi og fótboltanjósnara, segir að öll félög í Evrópu muni fljótt fylgjast með Ísaki.
„Það er ekki langt þangað til að öll félög í Evrópu verði með augastað á þessum leikmanni, ég get fullvissað ykkur um það. Demantur," skrifar Fadugba á Twitter.
Won’t be long before every club in Europe has their eyes on this player, I can assure you. Gem. 💎🇮🇸 https://t.co/D1Bjm4osqd
— Jonathan Fadugba (@JFfutbol) August 22, 2020
Athugasemdir




