Það er laugardagur og tilvalið að byrja þennan fallega dag á góðu slúðri. Hér koma molar sem BBC tók saman.
Arsenal er nálægt því að festa kaup á brasilíska miðverðinum Gabriel Magalhaes (22) frá Lille. Hann er búinn að fara í læknisskoðun eftir að samkomulag náðist um 27 milljón punda kaupverð. Það er fimm ára samningur frá Arsenal á borðinu fyrir hann, en ítalska félagið Napoli hefur ekki gefið upp vonina á að kaupa hann (Times)
Ef Napoli missir af Gabriel þá gæti félagið leitað til Arsenal í miðvarðarkaupum. Shkodran Mustafi (28) er á óskalistanum. (Daily Star)
Manchester United er líka í kapphlaupinu um Gabriel, en þarf að hækka tilboð sitt til að eiga möguleika. (Daily Star)
Manchester United hefur gert 27 milljón punda tilboð í Douglas Costa (29), kantmann Juventus. Ítalíumeistararnir vilja 9 milljónum punda hærra tilboð. (Joe)
Chelsea færist nær kaupum á Kai Havertz (21) eftir frekari viðræður við Bayer Leverkusen varðandi kaupverð. (Guardian)
West Ham vill losna við miðjumanninn Jack Wilshere (28) af launaskrá. Félagið er tilbúið að komast að samkomulagi um starfslok eða hjálpa honum að finna annað félag. (Times)
Chelsea er komið langt í viðræðum við Thiago Silva (35), miðvörð Paris Saint-Germain, sem er að renna út á samningi. Hann mun leika sinn síðasta leik með PSG á morgun þegar liðið mætir Bayern München í úrslitum Meistaradeildarinnar. (The Athletic)
Mike Maignan (25), markvörður Lille, er undir smásjá Chelsea. (Le10Sport)
Manchester City hefur komist að samkomulagi við Napoli varðandi kaup á miðverðinum Kalidou Koulibaly (29). (Sports Illustrated))
Liðsfélagar Jadon Sancho (20) hjá Borussia Dortmund eru sannfærðir um að hann verði áfram hjá félaginu í eitt ár til viðbótar. Hann hefur verið mikið orðaður við Manchester United. (Telegraph)
Everton er að bjóða Abdoulaye Doucoure (27), miðjumanni Watford, 120 þúsund pund í vikulaun. (Football Insider)
Rodrigo (29), sóknarmaður Valencia, er á óskalista Leeds United. (Mail)
Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, beinir sjónum sínum að Robin Koch (24), miðverði Freiburg í Þýskalandi, eftir að það tókst ekki að ná samkomulagi við Brighton um kaup á Ben White (22). (Sun)
West vill fá króatíska miðjumanninn Filip Krovinovic (24) og enska miðjumanninn Grady Diangana (22) aftur til félagsins. Þeir voru í láni á síðustu leiktíð frá Benfica og West Ham. (Mail)
Athugasemdir


