Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 06:00
Victor Pálsson
Fjórir efnilegir framlengja við ÍA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjórir ungir og efnilegir leikmenn ÍA hafa skrifað undir nýja samninga við félagið en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Um er að ræða þá Inga Þór Sigurðsson, Brynjar Snæ Pálsson, Hlyn Sævar Jónsson og Benjamín Mehic.

Allir leikmennirnir hafa spilað með meistaraflokki ÍA en yngstur er Ingi Þór sem er fæddur árið 2004.

Af heimasíðu ÍA:

Nýlega skrifuðu ungir efnilegir leikmenn undir samninga hjá Knattsyrnufélaginu ÍA.

Þetta eru allt leikmenn sem komið hafa upp í gegnum uppeldisstefnu félagsins.

Ingi Þór Sigurðsson var að skrifa undir sinn fyrsta samning hjá félaginu.Ingi Þór er fæddur árið 2004 og hefur leikið 2.leiki í Pepsi Max deildinni í sumar. Einnig á hann 2.leiki með U16 ára landsliðinu.

Brynjar Snær Pálsson var að endurnýja samninginn sinn. Brynjar er fæddur árið 2001 og hefur leikið 12 leiki með meistaraflokki og þar af eru 10 leikir í Pepsi Max og 1.mark og 2.leikir í Mjólkurbikarnum. Hann á 8.leiki með yngri landsliðum Íslands.

Hlynur Sævar Jónsson var að endurnýja samninginn sinn. Hlynur er fæddur árið 1999 og hefur leikið 11 leiki með meistaraflokki og þar af eru 9.leikir í Pepsi Max og 2.mörk og 2.leikir í Mjólkurbikarnum og 1.mark.

Benjamín Mehic var að endurnýja samninginn sinn.Benjamín er fæddur árið 2001 og hefur leikið 5.leiki með meistaraflokki.

Þetta eru framtíðarleikmenn ÍA liðsins.
Við óskum þeim til hamingju.

Athugasemdir
banner
banner
banner