Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   lau 22. ágúst 2020 16:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Frakkland: Rúnar byrjar nýtt tímabil á bekknum
Rúnar á landsliðsæfingu.
Rúnar á landsliðsæfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Franska úrvalsdeildin byrjaði að rúlla aftur í gær, 167 dögum eftir að keppni þar var aflýst á síðustu leiktíð vegna kórónuveirufaraldursins.

Í Frakklandi eru áhorfendur leyfðir en það mega mest vera 5000 áhorfendur á leik og þurfa þeir að virða tveggja metra regluna ásamt því að vera með grímu.

Íslendingalið Dijon hóf leik í dag gegn Angers á heimavelli og var niðurstaðan 1-0 tap hjá Dijon.

Markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er á mála hjá Dijon en hann byrjar þetta tímabil á bekknum, líkt og hann þurfti mikið að sætta sig við á síðustu leiktíð.
Slapp
banner
banner