Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Gerrard skildi Morelos eftir utan hóps - Á leið til Lille?
Alfredo Morelos hefur verið stjörnuleikmaður Rangers undanfarin ár en frábærar frammistöður hans hafa vakið áhuga stærri félaga úr sterkari deildum víðsvegar um Evrópu.

Áhuginn á Morelos hefur verið lengi til staðar en nú virðist eitthvað vera að gerast þar sem Steven Gerrard, stjóri Rangers, skildi sóknarmanninn eftir utan hóps í 2-0 sigri gegn Kilmarnock í dag.

Hinn 24 ára gamli Morelos hefur skorað 79 mörk í 142 leikjum með Rangers en Gerrard telur sóknarmanninn ekki vera með hausinn á réttum stað vegna áhuga stærri félaga.

Franska félagið Lille hefur mikinn áhuga á Morelos og hefur Gerrard áhyggjur að það hafi neikvæð áhrif á frammistöðu hans á vellinum.

Morelos á sjö leiki að baki fyrir A-landslið Kólumbíu og er talinn hafa mikinn áhuga á að ganga í raðir Lille.

„Þetta umtal hefur veruleg áhrif á hann og ég ætla bara að velja leikmenn í byrjunarliðið sem eru hungraðir og vilja vera hjá félaginu. Þeir sem spiluðu í dag voru þeir sem stóðu sig best á æfingu og sýndu mestan sigurvilja," sagði Gerrard eftir sigurinn gegn Kilmarnock.

„Þetta gildir alltaf um alla leikmenn. Leikmenn sem eru hungraðir og vilja spila fyrir Rangers verða valdir í liðið. Leikmenn sem eru ekki að fara að missa einbeitingu í miðjum leik."
Athugasemdir
banner
banner
banner