Íslensk knattspyrnufélög hafa fengið vænt högg síðustu daga og vikur þar sem leikið er fyrir luktum dyrum hér heima og fá félög engan aðgangseyri líkt og venjulega.
Alls hafa níu leikir í Pepsi Max-deild karla verið spilaðir án áhorfenda og fimm í Pepsi Max-deild kvenna sem veldur gríðarlegu tekjutapi fyrir félögin.
Íslensk félög treysta mikið á miðasölu til að halda uppi rekstri en því miður leyfir ástand þjóðfélagsins það ekki að svo stöddu.
RÚV ræddi við Pál Kristjánsson, formann knattspyrnudeildar KR, í gær þar sem hann fór yfir ástand félagsins á þessum erfiðu tímum.
Páll segir að KR tapi allt að níu milljónum með því að spila án áhorfenda í stórleikjum gegn Val og FH. KR er þessa stundina í sóttkví eftir leik við Celtic í Evrópudeildinni. Næsti leikur liðsins er gegn Val á miðvikudag.
„Við áttum Val núna á laugardaginn kemur, við áttum FH í síðustu viku og þetta eru sennilega þeir tveir leikir sem hafa dregið að flesta áhorfendur undanfarin ár. Okkur reiknast til að við séum að verða af tekjutapi af tveimur leikjum upp á 7-9 milljónir," sagði Páll í samtali við RÚV.
Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, tók undir þessi ummæli Páls og segir tapið nema um 3-4 milljónum fyrir meðalstóran leik.
„Ég myndi halda að það væri á meðalstórum leik svona 3-4 milljónir með miðasölu á leiki. Við erum með Fjósið sem er veitingasala og við erum með veitingasölu inni í húsi," sagði Börkur.
Nánar er rætt við Pál og Börk á vefsíðu RÚV
Athugasemdir


