Breiðablik hefur farið algerlega á kostum í Pepsi Max-deild kvenna í sumar. Liðið er á toppi deildarinnar eftir níu leiki með fullt hús stiga og enn hefur liðið ekki fengið mark á sig.
„Það er talað um þetta Blikalið eins og þær séu orðnar ómannlegar, en málið er að Steini (Halldórs, þjálfari liðsins) er búinn að gera svakalega vel," sagði Hulda Mýrdal í hlaðvarpsþættinum Heimavellinum í gær.
„Hildur Þóra kemur inn í þetta og hún er að spila eins og hún hafi alltaf verið þarna. Hafrún Rakel kemur alveg ný inn í liðið við hliðina á Kristínu og Heiðdísi - Kristín er ung líka. Sveindís er alveg ný. Hvernig hann nær alltaf að púsla þessu saman og gera þær ósnertanlegar, það finnst mér magnað."
Mist Rúnarsdóttir sagði þá: „Hann er búinn að vera þarna mjög lengi og það er mjög sterkt fyrir Blika að halda svona eftirsóknarverðum þjálfara í þessu starfi. Hann, Óli Péturs og Aron styrktarþjálfari vita nákvæmlega hvað þeir vilja og fá leikmenn til að 'matcha' það þegar þeir missa leikmenn. Það þarf enginn að segja mér að eftir þetta tímabil fari ekki einhverjir Blikar í atvinnumennskuna eftir þetta tímabil."
Markvörðurinn sem tekur aldrei boltann úr markinu
Sonný Lára Þráinsdóttir, markvörður og fyrirliði Blika, ræddi við Huldu um þetta frábæra gengi í sumar.
„Við erum með agaðan og skipulagðan varnarleik frá fremsta manni til þess aftasta. Við hefðum getað verið búnar að fá á okkur mark. Varnarlínan er búin að vera geggjuð, Kristín Dís bjargaði einu sinni á línu og þetta telur allt saman," sagði Sonný um frábæran árangur í varnarleiknum.
„Ég er líka með reynslu fyrir aftan, og er að stýra vel og grípa vel inn í áður en einhver hætta skapast. Þetta er búið að vera flott það sem af er sumri," sagði hógvær Sonný Lára.
„Fólk talar stundum eins og hún þurfi ekki að verja boltann, en hún staðsetur sig ótrúlega vel," sagði Hulda um Sonný.
„Það er líka einmitt lykill í markvörslu, þú vilt ekki þurfa að henda þér fram og til baka. Ef þú nærð að stýra vörninni vel, staðsetja þig vel og láta þetta líta út fyrir að vera auðvelt - þá ertu að gera eitthvað rétt. Hún er líka með geggjaðan fót, hún getur sparkað yfir allan völlinn og getur spilað stutt og langt. Eins á hún markteiginn sinn í öllum föstum leikatriðum," sagði Mist.
„Hún mætti fá miklu meira hrós því hún lætur þetta líta svo auðveldlega út," sagði Hulda.
Munu Blikar fá á sig mark
Þær Heimavallarstýrur telja þó að Blikar muni á endanum fá á sig mark í sumar.
„Nei, það væri fáránlegt. Nei," sagði Hulda og bætti Mist við: „Blikar eru mannlegar, það er bara þannig."
Hlusta má á Heimavöllinn í heild sinni hér að neðan.
Sjá einnig:
Blikastúlkur settu magnað met í kvöld - Enn ekki fengið á sig mark
Athugasemdir




