Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 08:00
Victor Pálsson
Hefur áhyggjur af Bale - „Peningarnir skipta ekki lengur máli"
Jurgen Klinsmann, fyrrum leikmaður Tottenham, vill sjá Gareth Bale snúa aftir til félagsins frá Real Madrid þar sem hann fær lítið að spila í dag.

Bale er ekki fyrsti maður á blað hjá Zinedine Zidane og var nálægt því að fara til Kína í sumarglugganum í fyrra.

Bale er orðinn 31 árs gamall og neitaði að spila í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Manchester City.

Klinsmann vonar að Bale taki ákvörðun um að yfirgefa Real fyrir næstu leiktíð og vill sjá hann koma aftur til Englands.

„Tíminn líður svo hratt fyrir leikmenn og þú getur ekki sóað honum. Versta refsing leikmanns er að sitja á varamannabekknum," sagði Klinsmann.

„Það mikilvægasta fyrir alla leikmenn er að komast út á völl og spila. Þegar það gengur ekki upp þá þarftu á endanum að taka ákvörðun og íhuga að fara."

„Það kemur tími á ferli atvinnumanna að þeir vilji þéna ákveðna upphæð af peningum til að finna fyrir öryggi en þegar það er komið þá er aðeins eitt sem skiptir máli - að spila, skora mörk og byggja ferilskrána."

„Peningarnir skipta ekki lengur máli. Peningarnir hafa engin áhrif á ákvörðunina sem Gareth þarf að taka. Hann þarf hins vegar að skoða fjölskyldumálin og hafa þau í huga."

„Leikmaður eins og hann, við viljum dást að honum í hverri viku í sjónvarpinu. Sem stuðningsmaður Tottenham vil ég sjá hann snúa aftur til liðsins."

Athugasemdir
banner
banner
banner