Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 15:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ingibjörg skoraði og lagði upp - Amanda kom inn á
Kvenaboltinn
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingibjörg Sigurðardóttir átti stórleik fyrir Valerenga þegar liðið lagði Lilleström að velli í norsku úrvalsdeildinni.

Ingibjörg er varnarmaður en hún spilaði eins og sóknarmaður í dag þar sem hún skoraði eitt og átti eina stoðsendingu í 3-1 útisigri. Ingibjörg er núna búin að skora þrjú mörk í norsku úrvalsdeildinni en hún er á sínu fyrsta tímabili í deildinni.

Valerenga er á toppi norsku úrvalsdeildarinnar með 20 stig eftir níu leiki. Þetta var mikilvægur sigur þar sem Lilleström er í þriðja sæti með 16 stig og með leik til góða.

Amanda kom inn á
Í dönsku úrvalsdeildinni kom hin 16 ára gamla Amanda Jacobsen Andradóttir inn á fyrir Nordsjælland í 2-1 tapi gegn Kolding. Amanda spilaði síðustu tíu mínúturnar og uppbótartímann fyrir Nordsjælland sem er í fjórða sæti með sjö stig eftir fjóra leiki.

Amanda, sem er fædd árið 2003, flutti til Danmerkur á síðasta ári eftir að hafa spilað með yngri flokkum Vals. Hún gekk í raðir Fortuna Hjörring og var þar í U18 liðinu. Hún samdi svo við Nordsjælland í sumar og er byrjuð að spila í deild þeirra bestu í Danmörku þrátt fyrir mjög ungan aldur.
Athugasemdir
banner
banner