Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   lau 22. ágúst 2020 12:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kasakstan: Rúnar Már skoraði af vítapunktinum
Rúnar Már í landsleik.
Rúnar Már í landsleik.
Mynd: Guðmundur Karl
Miðjumaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson var á skotskónum fyrir Astana í úrvalsdeildinni í Kasakstan í dag.

Rúnar Már kom Astana á bragðið með marki af vítapunktinum í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Astana gekk svo frá leiknum í síðari hálfleiknum og lokaniðurstaðan 2-0 sigur gegn Okzhetpes á heimavelli. Rúnar Már var tekinn af velli stuttu eftir síðara markið, á 83. mínútu.

Astana hefur spilað fjóra deildarleiki á tímabilinu og er með tíu stig, fimm stigum á eftir toppliði Almaty sem hefur spilað tveimur leikjum meira.
Slapp
banner
banner