Sebastian Kehl, fyrrum fyrirliði Dortmund sem starfar núna í stjórn félagsins, segir að Jadon Sancho fari ekki neitt í sumar.
Kehl segir að Englendingurinn tvítugi verði áfram hjá Dortmund í að minnsta kosti eitt tímabil í viðbót.
Manchester United hefur reynt að kaupa Sancho í sumar en er ekki tilbúið að koma til móts við 120 milljón evra verðmiða þýska félagsins á kantmanninum. Dortmund hefur núna ákveðið að hann verður ekki seldur.
„Jadon er ánægður hérna og hann er með samning til 2023," sagði Kehl að því er kemur fram á vefmiðlinum Goal.
„Ég fylgist með honum inn á vellinum og hann er mjög ánægður. Það eru allir mjög ánægðir að hafa hann. Hann verður hérna í að minnsta kosti eitt tímabil í viðbót."
Athugasemdir


