Ronald Koeman, nýr stjóri Barcelona, er í sambandi við Pep Guardiola eftir að hafa tekið við félaginu í vikunni.
Guardiola er fyrrum stjóri Barcelona og þekkir Lionel Messi mjög vel en hann er orðaður við brottför þessa stundina eftir slæmt gengi á tímabilinu.
Koeman ætlar að gera allt til að halda Messi hjá félaginu og hefur beðið Guardiola um ráð en sá síðarnefndi þjálfar í dag Manchester City.
„Messi er sannur sigurvegari. Ég og Pep Guardiola eru mjög nánir og ég er enn í sambandi við hann," sagði Koeman.
„Pep sagði mér að Messi vildi vinna, að hann vildi vinna allt saman. Ef hann vinnur ekki þá getur hann orðið mjög pirraður. Ég er spenntur fyrir því að starfa með honum."
„Ég þarf að sjá til þess að Messi virki með liðinu og að hann telji sig mikilvægan. Hann er fyrirliði liðsins."
„Hann verður að klára ferilinn hérna. Messi er Barcelona og Barcelona er Messi."
Athugasemdir



