Heimild: RÚV
Stórleik KR og Vals var frestað til 26. ágúst vegna nýrra sóttvarnarreglna fyrir fólk sem kemur til Íslands eftir dvöl erlendis.
KR heimsótti Celtic í undankeppni Meistaradeildarinnar og steinlá en leikmenn liðsins voru sendir í stutta sóttkví við heimkomuna.
Leikmannahópur KR er núna kominn í svokallaða vinnusóttkví og gátu leikmenn því æft aftur saman í dag.
Félög sem spila Evrópuleiki erlendis geta sótt um að sleppa venjulegri sóttkví og tekið vinnusóttkví í staðinn við heimkomuna. Það gerir leikmönnum kleift að halda áfram að æfa saman.
KR sótti ekki um vinnusóttkví enda var ekki búið að ganga frá þessari reglu þegar liðið hélt út. KR fékk undanþágu til vinnusóttkvíar í dag og æfir liðið í tveimur hópum; annars vegar leikmenn sem fóru til Skotlands og hins vegar leikmenn sem urðu eftir heima.
KR-ingar eru ánægðir með undanþáguna þar sem liðið hefði annars ekki fengið nema einn æfingadag fyrir stórleikinn gegn Val á miðvikudaginn.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Athugasemdir



