Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 15:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjudeild kvenna: ÍA kom til baka gegn spútnikliðinu
Lengjudeildin
Skagastúlkur náðu í stig á Seltjarnarnesi.
Skagastúlkur náðu í stig á Seltjarnarnesi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grótta 2 - 2 ÍA
1-0 Tinna Jónsdóttir
2-0 María Lovísa Jónasdóttir
2-1 Unnur Ýr Haraldsdóttir
2-2 Védís Agla Reynisdóttir

Það var hart barist þegar Grótta tók á móti ÍA í fyrri leik dagsins í Lengjudeild kvenna.

Grótta, sem hefur komið liða mest á óvart í Lengjudeildinni í sumar, byrjaði leikinn vel. Tinna Jónsdóttir, fyrirliði Gróttu, skoraði eina mark fyrri hálfleiks og í seinni hálfleiknum kom María Lovísa Jónasdóttir heimakonum í 2-0.

Útlitið var ekki bjart fyrir Skagakonur en þær sýndu mikinn karakter og tókst að koma til baka. Unnur Ýr Haraldsdóttir minnkaði muninn og á 87. mínútu jafnaði Védís Agla Reynisdóttir.

Þar við sat og lokatölur 2-2 á Seltjarnarnesi. Grótta, sem komst upp úr 2. deild í fyrra, er í þriðja sæti Lengjudeildarinnar með 18 stig, einu stigi frá Tindastóli í öðru sæti en Stólarnir eiga leik til góða. ÍA er í sjötta sæti með níu stig.
Athugasemdir
banner
banner