Afturelding 2 - 2 Keflavík
0-1 Ari Steinn Guðmundsson ('8)
1-1 Kári Steinn Hlífarsson ('38)
1-2 Josep Arthur Gibbs ('49)
2-2 Eyþór Aron Wöhler ('88)
0-1 Ari Steinn Guðmundsson ('8)
1-1 Kári Steinn Hlífarsson ('38)
1-2 Josep Arthur Gibbs ('49)
2-2 Eyþór Aron Wöhler ('88)
Afturelding og Keflavík áttust við í hörkuslag í Lengjudeild karla í dag og komust gestirnir úr Keflavík yfir snemma leiks.
Ari Steinn Guðmundsson skoraði þá eftir góða skyndisókn sem skapaðist í kjölfar slakrar sendingar frá Hafliða Sigurðarsyni.
Leikurinn var fjörugur og fengu bæði lið góð færi til að skora en það voru heimamenn sem jöfnuðu á 38. mínútu. Kári Steinn Hlífarsson skoraði þá eftir frábæra sendingu frá Jasoni Daða Svanþórssyni sem var afar líflegur.
Staðan var jöfn í hálfleik og komst Keflavík aftur yfir í upphafi síðari hálfleiks. Joey Gibbs skoraði þá eftir vandræðagang í varnarleik heimamanna.
Afturelding skipti um gír og komst nokkrum sinnum nálægt því að jafna en inn vildi boltinn ekki fyrr en undir lokin. Eyþór Aron Wöhler skoraði þá eftir fyrirgjöf frá Alejandro Zambrano.
Meira var ekki skorað og lokatölur 2-2 í afar fjörugum leik.
Keflavík er búið að jafna Fram á stigum á toppi deildarinnar á meðan Afturelding er áfram í neðri hlutanum, með tólf stig eftir ellefu umferðir.
Það tekur tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Athugasemdir


