Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 16:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjudeildin: Mögnuð úrslit fyrir Magna og Grindavík
Lengjudeildin
Grindavík vann þrátt fyrir að hafa verið tveimur mönnum færri.
Grindavík vann þrátt fyrir að hafa verið tveimur mönnum færri.
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
Úr leik Magna og Þórs í sumar. Magni náði í flott úrslit en það er ekki hægt að segja það sama um Þór.
Úr leik Magna og Þórs í sumar. Magni náði í flott úrslit en það er ekki hægt að segja það sama um Þór.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Það voru þrír leikir að klárast í Lengjudeildinni og það voru óvænta úrslit í blíðunni á Grenivík þar sem heimamenn gerðu sér lítið fyrir og náðu í stig gegn ÍBV.

Umræðan var sú fyrir tímabilið að ÍBV myndi fara léttleikandi í gegnum mótið og rúlla því upp, en svo hefur ekki verið.

Magnamenn voru flottir í dag og hefðu hæglega getað skorað, sérstaklega í fyrri hálfleiknum. „Kristinn Friðrik flautar til hálfleiks og bjargar Eyjamönnum undan pressunni," skrifaði Baldvin Már Borgarsson í textalýsingu þegar flautað var til hálfleiks.

Eyjamenn voru orðnir pirraðir undir lokin og það var músík í eyru Magnamanna sem lönduðu stigi, sínu öðru stigi í sumar. Magni er áfram á botninum, núna með tvö stig, á meðan ÍBV er í þriðja sæti með 23 stig.

Grindavík ótrúlegan sigur á Þór á heimavelli þrátt fyrir að hafa misst tvo menn af velli með brottvísun, rauða spjaldið. Gunnar Þorsteinsson fékk rautt á tíundu mínútu og á 51. mínútu fékk Oddur Ingi Bjarnason sitt seinna gula spjald.

Eina mark leiksins gerði hins vegar Alexander Veigar Þórarinsson fyrir Grindavík á 31. mínútu eftir sendingu frá Oddi Inga. Þórsarar náðu ekki að svara því þrátt fyrir að vera níu gegn ellefu í um 40 mínútur.

Grindavík hefur unnið tvo leiki í röð og er núna í sjötta sæti með 17 stig. Þór er líka með 17 stig, en í fimmta sæti.

Mögnuð úrslit fyrir Magna og Grindavík í þessum leikjum, en Framarar er á toppi deildarinnar eftir sigur gegn Leikni Fáskrúðsfirði á útivelli. Fram komst í 3-0 í byrjun seinni hálfleiks, en heimamenn hótuðu dramatík í lokin með tveimur mörkum í uppbótartíma. Þeir komust hins vegar ekki lengra en það og lokatölur 3-2.

Fram er með 24 stig, en Keflavík er með 23 stig og er að spila núna við Aftureldingu. Leiknir F. er í níunda sæti með tíu stig.

Leiknir F. 2 - 3 Fram
0-1 Þórir Guðjónsson ('29 )
0-2 Alexander Már Þorláksson ('49 )
0-3 Tryggvi Snær Geirsson ('51 )
1-3 Matthías Kroknes Jóhannsson ('91 , sjálfsmark)
2-3 Jesus Maria Meneses Sabater ('93 )
Lestu nánar um leikinn

Grindavík 1 - 0 Þór
1-0 Alexander Veigar Þórarinsson ('31 )
Rautt spjald: Gunnar Þorsteinsson, Grindavík ('10), Oddur Ingi Bjarnason, Grindavík ('51)
Lestu nánar um leikinn

Magni 0 - 0 ÍBV
Rautt spjald: Sigurður Arnar Magnússon , ÍBV ('91)
Lestu nánar um leikinn
Athugasemdir
banner
banner
banner