Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   lau 22. ágúst 2020 06:00
Elvar Geir Magnússon
Lewis Dunk gerir nýjan samning við Brighton
Brighton & Hove Albion tilkynnti í gær að fyrirliðinn Lewis Dunk væri búinn að framlengja til 2025.

Dunk er lykilmaður í hjarta varnarinnar hjá Brighton en liðið náði sínum besta árangri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar á liðnu tímabili.

„Við erum hoppandi kát með að Lewis hafi skrifað undir. Þetta eru feykilega góðar fréttir fyrir alla sem tengjast félaginu. Hann er toppleikmaður og það er frábært að vinna með honum," segir Graham Potter, stjóri Brighton.

Dunk er 28 ára og var í yngri flokka starfi félagsins áður en hann lék sinn fyrsta aðalliðsleik 2012. Hann hefur spilað nærri 300 leiki fyrir félagið.


Slapp
banner
banner
banner