Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
banner
   lau 22. ágúst 2020 21:20
Ívan Guðjón Baldursson
Ljungberg hættur hjá Arsenal
Freddie Ljungberg, sænskur þjálfari og fyrrum kantmaður, hefur ákveðið að yfirgefa Arsenal.

Ljungberg stýrði U15 og U23 liðum Arsenal samhliða hlutverki aðstoðarþjálfara. Hann tók við liðinu sem bráðabirgðarstjóri eftir að Unai Emery var rekinn í fyrra. Ljungberg stýrði Arsenal í nokkra leiki áður en Mikel Arteta tók við.

Ljungberg er 43 ára gamall og yfirgefur Arsenal til að leita á önnur mið. Mögulegt er að hann leitist eftir starfi sem knattspyrnustjóri hjá öðru félagi.

„Við verðum Freddie ævinlega þakklátir fyrir allt sem hann hefur gert fyrir félagið, bæði sem leikmaður og þjálfari. Það gerir okkur leiða að sjá hann fara en við óskum honum alls hins besta í framtíðinni," sagði Edu, tæknilegur ráðgjafi hjá Arsenal og fyrrum liðsfélagi Ljungberg hjá félaginu frá 2001 til 2005.


Athugasemdir
banner
banner