Stuðningsmenn Newcastle fá gleðifréttir á þessum laugardagsmorgni því miðjumaðurinn Matty Longstaff er búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið.
Viðræður hafa lengi staðið yfir en samningur Longstaff var runninn út. Hann ræddi við önnur félög, þar á meðal Udinese á Ítalíu, en ákvað að lokum að vera um kyrrt í Newcastle.
Leeds og Brighton höfðu einnig sýnt Matty áhuga, en hann ku hafa hafnað nokkrum góðum tilboðum til að vera áfram hjá uppeldisfélaginu.
Longstaff er tvítugur að aldri og lék hann sína fyrstu leiki í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hann skoraði eftirminnilegt mark í fyrsta leiknum gegn Manchester United.
Bróðir Matty, Sean, leikur einnig með Newcastle.
Newcastle sækir West Ham heim þegar enska úrvalsdeildin hefst aftur 12. september næstkomandi.
Athugasemdir



