Það eru tveir stórleikir á dagskrá í Meistaradeild kvenna í kvöld en 8-liða úrslit keppninnar halda áfram.
Tveir leikir voru í gær en Barcelona og Wolfsburg tryggðu sér þá sæti í undanúrslitunum. Barcelona marði Atletico Madrid 1-0 á meðan Wolfsburg burstaði Glasgow City með níu mörkum gegn einu.
Enska liðið Arsenal mætir Paris Saint-Germain í kvöld en allir leikirnir í útsláttarkeppninni fara fram á Spáni.
Í hinum leiknum eigast við ríkjandi meistarar Lyon og Bayern Munchen en það fyrrnefnda hefur unnið deild þeirra bestu fjögur ár í röð. Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði, er á mála hjá Lyon og stefnir á að vinna Meistaradeildina í fyrsta sinn á sínum ferli.
Laugardagur:
18:00 Lyon - FC Bayern (Stöð 2 Sport 2)
18:00 Arsenal - PSG (Stöð 2 Sport 3)
Athugasemdir


