Sara Björk Gunnarsdóttir spilaði seinni hálfleikinn er Lyon lagði Bayern München að velli í 8-liða úrslitum Meistaradeildar kvenna í kvöld.
Nikita Parris kom Lyon yfir undir lok fyrri hálfleiks og tvöfaldaði Amel Majri forystuna eftir leikhlé. Carolin Simon minnkaði muninn fyrir Bæjara en nær komust Þjóðverjar ekki í Bilbao.
Leikurinn var bragðdaufur og tíðindalítill þar sem hart var barist á miðju vallarins og lítið um færi. Sara Björk og stöllur mæta því Paris Saint-Germain í frönskum undanúrslitaleik.
Lyon 2 - 1 Bayern
1-0 Nikita Parris ('41)
2-0 Amel Majri ('59)
2-1 Carolin Simon ('64)
PSG lagði Arsenal að velli á sama tíma og Lyon sigraði gegn Bayern.
Marie-Antoinette Katoto kom PSG yfir snemma leiks en Bethany Mead náði að jafna og var staðan 1-1 eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik.
PSG tók öll völd á vellinum eftir leikhlé og gerði Signe Bruun verðskuldað sigurmark á 77. mínútu, eftir stoðsendingu frá Katoto.
Arsenal 1 - 2 PSG
0-1 Marie-Antoinette Katoto ('15)
1-1 Bethany Mead ('39)
1-2 Signe Bruun ('77)
Wolfsburg, fyrrum félag Söru Bjarkar, mætir Barcelona í hinum undanúrslitaleiknum. Wolfsburg vann Glasgow City 9-1 í 8-liða úrslitum á meðan Barca rétt marði Atletico Madrid.
Athugasemdir

