Gylfi Þór Sigurðsson var á skotskónum fyrir Everton er liðið gerði 3-3 jafntefli við Blackpool í æfingaleik á heimavelli Blackpool í dag.
Everton byrjaði leikinn hræðilega og lenti 3-0 undir eftir aðeins 11 mínútna leik. Þess má geta að Blackpool er í C-deild á Englandi og Everton auðvitað í ensku úrvalsdeildinni.
Dominic Calvert-Lewin minnkaði muninn á 23. mínútu og var staðan 3-1 í hálfleik. Gylfi minnkaði muninn á 30. mínútu úr vítaspyrnu og hann fullkomnaði svo endurkomuna með fallegu marki beint úr aukaspyrnu í seinni hálfleik.
Gylfi spilaði 76 mínútur í leiknum í dag, en síðasta tímabil var ekki nægilega gott hjá honum. Hann stefnir eflaust á að gera mun betur á komandi tímabili.
Lokatölur voru 3-3. Enska úrvalsdeildin hefst aftur 12. september og er Everton að fara inn í sitt fyrsta heila tímabil undir stjórn Carlo Ancelotti.
Hér að neðan má sjá aukaspyrnumark Gylfa.
🎯 | Top bins from Gylfi!#EFC 🔵 pic.twitter.com/QyIQAsfyO2
— Everton (@Everton) August 22, 2020
Athugasemdir



