Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   lau 22. ágúst 2020 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Neymar: Enginn man eftir liðinu sem vann í undanúrslitum
PSG og Bayern mætast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar annað kvöld. PSG stefnir á að vinna Meistaradeildina í fyrsta sinn í sögunni og er Neymar afar spenntur fyrir viðureigninni.

Neymar hefur unnið Meistaradeildina með Barcelona en það er meiri áskorun að vinna hana með PSG, félagi sem hefur aldrei hampað titlinum.

„Ég veit að það er merkilegt að vinna Meistaradeildina en það væri enn merkilegra að gera það með PSG. Það væri sögulegt og er nákvæmlega ástæðan fyrir því að ég kom hingað," sagði Neymar í viðtali við Daily Star.

„Við spiluðum mjög vel í undanúrslitaleiknum en enginn man eftir liðinu sem vann í undanúrslitum. Þetta verður gríðarlega erfiður leikur gegn stjörnum prýddu liði Bayern en við erum líka með virkilega gott lið. Við höfum verið að spila mjög vel og mér finnst ég vera að spila minn besta fótbolta síðan ég flutti til Parísar.

„Hérna viljum við vera. Eigendurnir eru með stór áform fyrir þetta félag og partur af því er að vera bestir í Evrópu. Við höfum aldrei komist svona nálægt því að vera bestir."


Neymar er vafalaust meðal bestu leikmanna heims en hefur ekki enn unnið Gullknöttinn.

„Messi og Ronaldo hafa réttilega unnið Gullknöttinn síðasta áratug. Þeir eru frá annarri plánetu. Það væri mikill heiður fyrir mig að vinna þessi verðlaun líka en það veltur alfarið á því hverju mér tekst að afreka á fótboltavellinum.

„Ég einbeiti mér að því að spila vel og gera vel fyrir liðið mitt, allt annað mun koma af sjálfu sér."

Athugasemdir
banner
banner
banner