Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði fyrsta mark leiksins er Íslendingalið Álasundar tapaði fyrir Haugesund í efstu deild norska boltans í dag.
Daníel Leó Grétarsson spilaði allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Álasundi á meðan Hólmbert var í framlínunni. Davíð Kristján Ólafsson kom inn í hálfleik en tókst ekki að skora.
Álasund vermir botnsæti deildarinnar, með sjö stig eftir fimmtán umferðir.
Álasund 1 - 3 Haugesund
1-0 Hólmbert Aron Friðjónsson ('12)
1-1 I. Wadji ('25)
1-2 N. Sandberg ('34, víti)
1-3 N. Sandberg ('58)
Alfons Sampsted er mikilvægur hlekkur í toppliði Bodö/Glimt og spilaði hann allan leikinn í hægri bakverðinum í auðveldum sigri gegn fallbaráttuliði Start.
Toppliðið gerði sér lítið fyrir og skoraði sex mörk gegn lærisveinum Jóhannesar Harðarsonar í Start.
Bodö/Glimt trónir á toppi deildarinnar með sjö stiga forystu á Molde og leik til góða. Liðið er búið að vinna þrettán og gera tvö jafntefli á tímabilinu.
Bodö/Glimt 6 - 0 Start
1-0 V. Boniface ('17)
2-0 P. Berg ('35)
3-0 J. Hauge ('53, víti)
4-0 P. Zinckermagel ('54)
5-0 J. Hauge ('56)
6-0 V. Boniface ('60)
Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn á miðjunni hjá Vålerenga sem hafði betur gegn Sandefjord í hörðum Íslendingaslag.
Emil Pálsson var allan leikinn á miðju Sandefjord sem komst yfir snemma leiks og leiddi allt þar til á lokasprettinum, þegar varamaðurinn Bard Finne sneri leiknum við með tvennu.
Vålerenga er í fjórða sæti eftir sigurinn, tveimur stigum eftir Odd sem er í síðasta Evrópusætinu. Sandefjord er rétt fyrir ofan fallsvæðið, með sextán stig eftir fimmtán umferðir.
Vålerenga 2 - 1 Sandefjord
0-1 S. Gussias ('10)
1-1 Bard Finne ('83)
2-1 Bard Finne ('89)
Að lokum var Ari Leifsson ekki í hópi hjá Strömsgodset sem tapaði fyrir Viking. Axel Óskar Andrésson lék allan leikinn í hægri bakverði í liði Viking.
Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið en Viking hafði betur og kom sér úr fallsæti. Strömsgodset er rétt fyrir ofan Viking.
Strömsgodset 0 - 2 Viking
0-1 J. Ipalibo ('74, sjálfsmark)
0-2 J. Bell ('91)
Athugasemdir


