Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
   lau 22. ágúst 2020 17:03
Anton Freyr Jónsson
Grindavíkurvöllur
Palli Gísla: Svekkjandi að fá ekkert út úr þessum leik
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík og Þór mættust á Grindavíkurvelli í dag í ótrúlegum fótboltaleik. Alexander Veigar Þórarinsson skoraði eina mark leiksins en það kom á 31.mínútu.

Grindavík misstu tvo menn af velli í leiknum. Gunnar Þorsteinsson fékk að líta beint rautt í byrjun leiks og síðan var Oddur Ingi Bjarnason rekinn útaf í byrjun síðari hálfleiks með sitt annað gula.

Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs var svekktur að leikslokum.


Lestu um leikinn: Grindavík 1 -  0 Þór

„Já ég meina, það sáu það allir sem vildu sjá að okkur var ekki ætlað að skora hérna í dag. Við beittum ýmsum ráðum og dáðum. Við dominatuðum allan leikinn. Fengum á okkur mjög ódýrt mark og það var það sem skyldi að í dag en vissulega ömurlegt að fá ekkert út úr þessum leik."

Þórsararnir voru einum manni fleiri frá tíundu mínútu leiksins og síðan tveimur mönnum mönnum fleiri frá 50 mínútu. Páll var spurður hvort það væri ekki pirrandi að fá ekkert út úr leiknum í dag.

„Já enda herjuðum við á þá allan tíman vorum 99% með boltann en mörkin telja og við náðum ekki að skora þrátt fyrir skot í slá og stöng og hvað þetta var allt saman. Auðvitað er það svekkjandi að fá ekkert út úr þessum leik."

„Þetta er ekki fyrsti leikurinn sem við náum ekki að skora þegar við erum með yfirburði á vellinum hvað svo sem andstæðingarnir eru margir inn á en þetta er bara eitthvað sem við þurfum að lifa við og vonandi getum við bætt aðeins í og ná fram úrslitum þrátt fyrir að anstæðingurinn missi mann útaf. Átta eða tíu í svona leik þar sem maður sá fljótlega að þetta var einn af þessum leikjum sem okkur var ekki ætlað að skora en ég held að leikmenn hafi lagt sig alla fram og gert það sem var beðið en það vantaði þennan herslumun."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner